Borðtennisnámskeið HK

Í sumar mun HK bjóða upp á fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 5 til 10 ára ( f. 2014- 2018 ). HK reynir að fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumar er engin undantekning. Skipulögð dagskrá er frá kl. 09.00 – 16.00 virka daga. 

Allir umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta – og tómstundastarfi.

Borðtennisskóli HK býður uppá 5 námskeið í sumar, fimm daga í senn, fjögur námskeið haldin í Kórnum og eitt í Snælandsskóla.
Námskeiðið er fyrir krakka á aldrinum 6 til 10 ára og er boðið upp á námskeið hálfan daginn frá  kl. 09.00 – 12.00 kl. 13.00 – 16.00.

Námskeið í Snælandsskóla
Námskeið 1. 10. – 14. júní kl. 09.00 – 12.00

Námskeið í Kórnum
Námskeið 1. 10. – 14. júní kl. 13.00 – 16.00

Námskeið 2. 18. – 21. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 3. 24. – 28. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 4. 12. – 16. ágúst kl. 13.00 – 16.00

Umsjón með námskeiðinu hefur Bjarni Bjarnason sem mun bjóða uppá góða kennslu og mikið fjör.

Skráning er hafin
Einnig er hægt að senda tölvupóst á HK eða hringja í síma 513 -8701