Kynningarnámskeið í sjávaríþróttum og siglingum fyrir börn f. 2011 – 2015
Siglingaklúbburinn Kópanes er með aðstöðu á siglingasvæði Ýmis við Naustavör.
Á námskeiðunum er farið í grunnatriði í siglingum, róður á árabátum, kanóum og siglingum á seglbátum.
Leiðbeinendur eru siglingamenn sem kappkosta að veita þátttakendum góða kennslu í siglingum.
Mikil áhersla er lögð á öryggi barnanna.
Mikilvægt er að börnin komi með nesti, séu klædd til siglinga og hafi meðferðis aukaklæðnað til skiptanna.
Námskeið 1: 10. júní – 14. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 2: 10. júní – 14. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 3: 18. júní – 21. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 4: 18. júní – 21. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 5: 24. júní – 28. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 6: 24. júní – 28. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 7: 01. júlí – 05. júlí kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 8: 01. júlí – 05. júlí kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 9. 08. júlí – 12. júlí kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 10. 08. júlí – 12. júlí kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 11. 15. júlí – 19. júlí kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 12. 15. júlí – 19. júlí kl. 13.00 – 16.00
Námskeiðsgjald er 8.500 kr. vikan. Systkinaafsláttur reiknast við skráningu. Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 20 börn.
Skráning hefst 25. apríl. Námskeiðsgjald greiðist við skráningu.
Forstöðumaður sjávaríþrótta
s. 441 2960/ Gsm 621 4151.