Að rækta matjurtagarð
Skólagarðar hafa verið reknir á vegum Kópavogsbæjar síðastliðin 50 ár.
Þeir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6 til 13 ára. Þar fá þau útsæði, plöntur og fræ ásamt leiðsögn við ræktun algengustu matjurta. Leiðbeinendur og aðstoðarmenn starfa með börnunum, en auk ræktunarinnar er farið í leiki, skoðunarferðir, haldið íþróttamót, grillað og fleira skemmtilegt. Skólagarðarnir eru þó hvorki leikjanámskeið né gæsluvellir fyrir börn.
Skólagarðar Kópavogs eru starfsæktir á eftirtöldum stöðum:
Við Arnarnesveg á mörkum Sala – og Kórahverfis
Við Dalveg
Við Víðigrund í Fossvogsdal
Innritun í Skólagarða hefst 23. apríl ( Sumardaginn fyrsta ). Starfið hefst í byrjun júní og lýkur með uppskerudegi seinni hluta ágústmánaðar.
Verð fyrir hvern garð er 5.500 kr.
Umsjón með skólagörðum hefur Svavar Pétursson verkefnastjóri. Starfsmenn Skólagarða svara fyrirspurnum í tölvupóstfanginu skolagardar@kopavogur.is
Skráning í skólagarða er í Frístundagátt Kópavogsbæjar – hér.