Tennisskóli TFK 9 til 13 ára

Á námskeiðinu er lögð áhersla á tennisæfingar, tennisspil og ýmsa tennisleiki auk þess sem spilaðir eru hlaupa- og boltaleikir.  Þátttakendur fá einnig að kynnast nýrri íþrótt á Íslandi sem heitir Padel.  Aðal áhersla, í öllum aldurhópum, er að hafa gaman af tennis og padel. Hvert námskeið er sett upp sem tveggja vikna námskeið en hægt er að taka stakar vikur.

Námskeiðsvikur eru eftirfarandi:

Námskeið 1: 11. júní – 25. Júní
Námskeið 2: 28. júní – 9. Júlí
Námskeið 3: 12. júlí – 23. Júlí
Námskeið 4: 26. júlí  – 6. ágúst
Námskeið 5: 9. ágúst – 20. ágúst

Í lok hvers námskeiðs er haldin pizzu – eða grillveisla og fá allir nemendur TFK bol og viðurkenningarskjal.  Hægt er að velja um námskeið frá kl. 9:00 – 12:00, frá kl. 13:00 – 16:00 og allan daginn frá kl. 09:00 – 16:00. Börnin geta fengið gæslu kl. 7:45 – 09:00, í hádeginu og frá kl. 16:00 – 17:15. Gæsla er án endurgjalds.

Námskeiðsgjald: Verð fyrir hverja viku hálfan daginn er kr. 13.900 kr. og fyrir heilan dag 19.900 kr. Systkinaafsláttur er 10% fyrir öll systkini.  Veittur er hlutfallslegur afsláttur ef vika á námskeiði er styttri en 5 dagar.

Umsjón með Tennisskólanum hafa tennisþjálfararnir Jón Axel Jónsson, Milan Kosicky og Diana Ivancheva.

Skráning er hafin á heimasíðu TFK. Skráning hér. Einnig er hægt að hafa samband við Tennishöllinna í síma 564 – 4030 og í tölvupósti á tennis@tennishollin.is.

Vinsamlegast frestið ekki skráningu því aðeins 60 börn komast á hvert námskeið.

Posted in Óflokkað.