Í sumar mun HK bjóða upp á fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 5 til 14 ára ( f. 2009 – 2017 ). HK reynir að fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumar er engin undantekning. Skipulögð dagskrá er frá kl. 09.00 – 16.00 virka daga.
Allir umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta – og tómstundastarfi.
Borðtennisskóli HK býður uppá 4 námskeið í sumar, 5 daga í senn og verða þau haldin aðstöðu borðtennisdeildar HK í Snælandsskóla. Námskeiðið er fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára og er boðið upp á námskeið hálfan daginn frá kl.. 09.00 – 12.00 og 13.00 – 16.00, einnig er hægt að velja að vera bæði fyrir og eftir hádegi.
Námskeið 1. 12. – 16. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 1. 12. – 16. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 2. 31.júlí – 04. ágúst kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 2. 31. júlí – 04. ágúst kl. 13.00 – 16.00
Umsjón með námskeiðinu hefur Bjarni Bjarnason sem mun bjóða uppá góða kennslu og mikið fjör.
Skráning er hafin
Einnig er hægt að senda tölvupóst á HK eða hringja í síma 513 -8701