Fjölgreinanámskeið HK

Í sumar mun HK bjóða upp á fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 5 til 10 ára. HK reynir að fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumar er engin undantekning. Skipulögð dagskrá er frá kl. 09.00 – 16.00 virka daga. 

Allir umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta – og tómstundastarfi.

Fjölgreinanámskeið HK verður með 2 námskeið í sumar fimm daga í senn. Námskeiðin fara fram í Kórnum og eru fyrir krakka á aldrinum 6 til 9 ára. Boðið er uppá námskeið allan daginn og  hádegismatur er innfalinn.

Ágúst.
Námskeið 1. 06. – 09. ágúst, kl. 09.00 – 16.00
Námskeið 2. 12. – 16. ágúst, kl. 09.00 – 16.00

Skráning er hafin.

Einnig er hægt að senda tölvupóst á HK eða hringja í síma 513 -8701