Kynningarnámskeið í sjávaríþróttum og siglingum fyrir börn fædd 2010 – 2014
Siglingaklúbburinn Kópanes er með aðstöðu á siglingasvæði Ýmis við Naustavör.
Á námskeiðunum er farið í grunnatriði í siglingum, róður á árabátum, kanóum og siglingum á seglbátum.
Leiðbeinendur eru siglingamenn sem kappkosta að veita þátttakendum góða kennslu í siglingum.
Mikil áhersla er lögð á öryggi barnanna.
Mikilvægt er að börnin komi með nesti, séu klædd til siglinga og hafi meðferðis aukaklæðnað til skiptanna.
Námskeið 1: 12. júní – 16. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 2: 12. júní – 16. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 3: 19. júní – 23. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 4: 19. júní – 23. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 5: 26. júní – 30. júní kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 6: 26. júní – 30. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 7: 03. júlí – 07. júlí kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 8: 03. júlí – 07. júlí kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 9. 10. júlí – 14. júlí kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 10. 10. júlí – 14.júlí kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 11. 17. júlí – 21. júlí kl. 09.00 – 12.00
Námskeið 12. 17. júlí – 21. júlí kl. 13.00 – 16.00
Námskeiðsgjald er 8.100 kr. fyrir 5 virka daga. Systkinaafsláttur reiknast við skráningu. Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 20 börn.
Skráning hefst 8. maí. Námskeiðsgjald greiðist við skráningu.
Forstöðumaður sjávaríþrótta er Dagmar Óladóttir s. 441 2960/ Gsm 621 4151.