Á sumarvef Kópavogsbæjar er að finna margvísleg og fjölbreytt frístunda, - leikja - og íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára. Hér er kynning á starfstengdu námskeiði fyrir unglinga við Götuleikhúsið og er það samstarfsverkefni við Vinnuskóla Kópavogs.  Einng er boðið upp á starfstengt frístundaurræði við ungmennahúsið Molann fyrir ungmenni með sérþarfir á aldrinum 16 til 20 ára.

Námskeið á vegum Frístunda - og forvarnadeildar í sumar verða hjóla - og útivistarnámskeið, smíðavöllur, siglingar, Frístund fyrir börn með sérþarfir og ævintýranámskeið. Þá verður einnig frístundaopnun í einstaka félagsmiðstöðvum fyrir unglinga í Kópavogi. Námskeiðin munu standa yfir í 4 - 6 vikur. Náttúrufærðistofa verður einnig með eitt námskeið fyrir 10 til 12 ára börn. Skráningar á þessi námskeið fara fram hér á sumarvefnum og hefjast 3. maí 2012.

Skapandi sumarstörf verða við ungmennahúsið Molann og umsóknir í það starf fara fram á umsóknarvef á heimasíðu Kópavogsbæjar http://www.kopavogur.is Umsóknarferli í það starf lýkur 15. apríl 2012

Íþróttafélög í Kópavogi, tómstundafélög og félagasamtök bjóða einning upp á margskonar sumarnámskeið og eru skráningar á þau námskeið í umsjá þeirra. Nánari upplýsingar um það er að finna í kynningu hvers og eins hér á vefnum.

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga
sæta langa sumardaga, sæta langa sumardaga.

Verið velkomin í sumarstarf í Kópavogi 2012.

Arna Margrét Erlingsdóttir
Verkefnastjóri Frístunda - og forvarnadeildar

Netfang sumarnámskeiða er: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.