Fimleika – og íþróttafjör. Íþróttamiðstöðin Versölum 3.
Íþróttafélagið Gerpla stendur fyrir fjölbreyttu og skemmtilegu íþrótta- og tómstundastarfi í allt sumar. Starfið fer fram í glæsilegri aðstöðu félagsins í Versölum auk útisvæða í nágrenni þess.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem lögð verður áhersla á fimleika og aðrar íþróttir, farið í sund ásamt ýmiskonar útiveru. Mikil áhersla verður á fjölbreytni á námskeiðunum og að hvert námskeið sé skemmtileg upplifun fyrir börnin.
Námskeiðin eru fyrir börn fædd á árunum 2014 – 2018, nánar tiltekið þau sem eru að fara í skóla að hausti og upp í 10 ára.
Námskeiðsvikur.
Júní.
Námskeið 1: 10. – 14. júní
Námskeið 2: 18. – 21. júní (4 dagar)
Námskeið 3: 24. – 28. júní
Júlí.
Námskeið 4: 01. – 05. júlí
Námskeið 5: 08. – 12. júlí
Námskeið 6: 15. – 19. júlí
Námskeið 7: 22. – 26. júlí
Ágúst.
Námskeið 7: 06. – 09. ágúst (4 dagar)
Námskeið 8: 12. – 16. ágúst
Á námskeiðunum er skipulögð dagskrá frá kl. 09.00 – 16.00. Boðið er upp á gæslu án aukakostnaðar frá kl. 08.00 – 09.00 og frá kl. 16.00 – 17.00.
Gjaldskrá.
Verð fyrir 4 daga námskeið kr. 13.520, 5 daga námskeið kr. 16.900.
Athugið að fjöldi barna á hverju námskeiði verður takmarkaður.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Gerplu. Sumarnámskeið 2024 – Íþróttafélagið Gerpla
Fyrirspurnir sendist á sumarnamskeid@gerpla.is eða í síma 513-8800
Umsjón með Fimleika- og íþróttafjöri hefur Andrea Hansen
Yfirmaður sumarnámskeiða Gerplu er Andrea Hansen deildarstjóri almennrar deildar Gerplu.