Söngskólinn Vocalist

Sumarnámskeið  Vocalist 2023

Lýsing:
Skemmtilegt og uppbyggjandi námskeið fyrir 9-12 ára krakka þar sem markmiðið er að hver einstaklingur fái að blómstra og vaxa í gegnum röddina. Einnig er mikil áhersla lögð á að vinna með að auka sjálfstraustið hjá börnunum í gegnum æfingar, skapandi leiki og jóga. Hver og einn velur sér 1 lag til að vinna með á námskeiðnu og síðasti tíminn er síðan “opin æfing” þar sem foreldrar eru velkomnir að koma og sjá afraksturinn. Einnig þjálfast börnin í að syngja saman í kór og tóneyrað þjálfað með því að æfa einfalda keðjusöngvar og tveggja radda útsetningar.

Það sem söngvarinn lærir:

  • Kynnist röddinni sinni betur og möguleikum hennar
  • Breiðara raddsvið og/eða raddstyrkur
  • Túlkun, tjáningu og framkomu
  • Textaskilning
  • Syngja saman í kór
  • Að syngja í röddum
  • Verkfærakistu til að takast á við sviðsskrekk t.d. öndunaræfingar
  • Leiklistarspuna
  • Einfaldar jógaæfingar
  • Að syngja í míkrafón
  • Gróskuhugarfar

Námskeiðsvikur:
Námskeið 1. 12. – 16. júní kl. 13.00 – 16.00
Námskeið 2. 14. – 18. ágúst kl. 13.00 – 16.00

Námskeiðsgjald er kr. 26.900. Hámarksfjöldi í hóp eru 14 börn.
Nánari upplýsingar og skráning er hafin hér 

Kennarar eru Sólveig Unnur Ragnarsdóttir og María Dalberg/ sjá nánar hér.

Námskeiðið fer fram í Víkurhvarfi 1,
203 Kópavogur

Söngskólinn Vocalist