Útilífsnámskeið Kópa
Skátafélagið Kópar býður upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann og er haldið í skátaheimili Kópa við Digranesveg 79. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt. Námskeiðin eru fjölbreytt og reynt eftir fremsta megni að hafa ólíka dagskrá í hverri viku. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára fædd 2010 – 2014.
Námskeiðin eru frá kl. 09.00 – 16.00 og boðið er upp á gæslu á milli 08.00 – 09.00 og kl. 16.00 – 17.00 sem greiða þarf aukalega fyrir. Þátttakendur þurfa að koma klædd eftir veðri, gert er ráð fyrir útiveru alla dagana, eins þurfa þátttakendur að vera vel nestaðir fyrir langan dag stútfullan af ævintýrum.
Námskeiðsvikur:
Námskeið 1. 13. – 16. júní (4 dagar ) *
Námskeið 2. 20. – 24. júní
Námskeið 3. 27. júní – 01. júlí
Námskeið 4. 04. – 08. júlí
Námskeið 5. 11. – 15. júlí
Námskeið 6. 02. – 05. ágúst (4 dagar )*
Námskeið 7. 08. – 12. ágúst
Námskeið 8. 15. – 19. ágúst
Námskeiðsgjald:
5 dagar kr. 17.000
4 dagar kr. 14.500*
Gjald fyrir gæslu kr. 4.000
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Skátafélagsins Kópa
á facebook síðu Útilífsskóla Kópa eða senda póst á Útilífsskólann
Einnig má hringja í Skátafélagið Kópa í síma 554-4611 á opnunartíma.
Skráning hefst 27. apríl og fer fram HÉR