Tennis – og leikjaskóli fyrir 5 til 8 ára börn.
Markmið námskeiðanna er að kenna undirstöðu atriði tennisíþróttarinnar í bland við skemmtilega bolta-, hlaupa- og tennisleiki auk þess sem spilaður er mini tennis. Ýmislegt annað er til gamans gert svo sem barnaeróbikk með skemmtilegri tónlist, ratleikur, tarzanleikur og fleira. Á hverju námskeiði er lögð áhersla á að auka hreyfiþroska barnanna og uppeldislega hollt umhverfi . Miðað er við að um það bil einn leiðbeinandi sé á hver 6 börn. Börnunum er skipt í hópa eftir aldri.
Námskeiðsvikur eru eftirfarandi:
Námskeið 1: 10. júní – 24. júní
Námskeið 2: 27. júní – 08. júlí
Námskeið 3: 11. júlí – 22. júlí
Námskeið 4: 25. júlí – 05. ágúst
Námskeið 5: 08. ágúst – 19. ágúst
Námskeiðin eru sett upp sem tveggja vikna námskeið en hægt er að taka stakar vikur.Í lok hvers námskeiðs er haldin pizzu – eða grillveisla og fá allir nemendur TFK bol og viðurkenningarskjal. Hægt er að velja um námskeið frá kl. 09:00 – 12:00, frá kl. 13:00 – 16:00 og allan daginn frá kl. 09:00 – 16:00. Börnin geta fengið gæslu kl. 07:45 – 09:00, í hádeginu og frá kl. 16:00 – 17:15. Gæsla er án endurgjalds.
Námskeiðsgjald: Verð fyrir hverja viku hálfan daginn er kr. 16.900 kr. og fyrir heilan dag 24.900 kr. Systkinaafsláttur er 10% fyrir öll systkini. Veittur er hlutfallslegur afsláttur ef vika á námskeiði er styttri en 5 dagar.
Umsjón með Tennis- og leikjaskólanum hafa tennisþjálfararnir Anna Soffía Grönholm og Patricia Husakova.
Skráning er hafin á heimasíðu TFK. Skráning hér. Einnig er hægt að hafa samband við Tennishöllinna í síma 564 – 4030 og í tölvupósti á tennis@tennishollin.is.
Vinsamlegast frestið ekki skráningu því aðeins 50 börn komast á hvert námskeið.