Bókasafn Kópavogs

BókaKrakkar
– hvernig verður bókin til? – 

Bókasafn Kópavogs býður skáldum á aldrinum 9 til 12 ára á stefnumót við rithöfunda á sumarnámskeiði í ágústmánuði.

Námskeiðið fer fram á aðalsafni dagana 15. – 19. ágúst og stendur frá kl. 13:00 – 16:00 alla dagana.

Krakkarnir kanna bókasafnið, lesa bækur, tala um bækur, leggja drög að sínum eigin bókum, kynnast því hvernig bækur verða til og spjalla við höfunda uppáhalds bókanna sinna. Flottir rithöfundar heimsækja hópinn og farið verður í vettvangsferðir í bókaforlög og á Lindasafn.

 

Námskeiðið hentar öllum krökkum sem hafa gaman af því að segja sögur. Að námskeiði loknu hafa krakkarnir fengið innsýn inn í störf rithöfunda og hafa prófað að skrifa sögur eftir ýmsum aðferðum. Þau æfa sig að vinna bæði saman og sjálfstætt og þjálfa sig í að taka gagnrýni og veita hana. Ekki síður er mikilvægt tækifærið til að lesa bækur, skiptast á skoðunum um þær og læra að umbreyta lestri í sköpunarkraft.

Öll börn fá viðurkenningarskjal að námskeiði loknu. Hámarksfjöldi á námskeiðið eru 15 börn.

Námskeiðsgjald er kr. 10.000. Systkinaafsláttur reiknast við skráningu. Skráning hér.

 

Vinsamlega athugið: Börn sem eru með lögheimili utan Kópavogs þarf að skrá með því að senda tölvupóst á gretabjorg@kopavogur.is

Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir deildarstjóri barnastarfs í síma 441 6800 eða í tölvupósti á gretabjorg@kopavogur.is

 

Bókasafns Kópavogs
Hamraborg 6a
sími: 441 – 6800

Vefslóð: bokasafn.kopavogur.is

Netfang: bokasafn@kopavogur.is