GKG – Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar – golfleikjanámskeið.
Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kynna íþróttina fyrir börnunum í gegnum golftengda leiki og hreyfingu. Nemendum er skipt í tvo hópa, 6 til 8 ára og 9 til 12 ára og eftir kyni sé þess kostur. Á seinasta degi námskeiðsins kynnast þau leiknum sjálfum enn frekar með því að leika æfingavöllinn okkar þar sem brautirnar er 40 – 60 metra langar. Námskeiðum lýkur síðan með pylsuveislu og afhendingu viðurkenningarskjals frá GKG
Markmið: Að kynna golfíþróttina fyrir börnunum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa fjölskylduvænu íþrótt. Farið er í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum til upphafshögga og eru leiðbeiningar gjarnan í formi golfleikja ýmiss konar. Einnig verður lögð áhersla á að kynna helstu golfsiði og golfreglur fyrir nemendum. Mikilvægt er að á golfnámskeiðinu séu einnig fjölbreyttir leikir sem efla hreyfiþroska barnanna svo sem samhæfingu, liðleika og jafnvægi, enda eru það mikilvægir þættir í hreyfingum golfsveiflunnar. Forgangsatriði námskeiðanna eru að þau séu örugg, skemmtileg, og að börnin njóti sín og þrói jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar.
Námskeið og dagsetningar:
Námskeið 1: 10. júní – 14. júní
Námskeið 2: 18. júní – 21. júní (4 dagar)
Námskeið 3: 01. – 05. júlí
Námskeið 4: 15. – 19. júlí
Námskeið 5: 22. – 26. júlí
Námskeið 6: 06. – 09. ágúst ( fjórir dagar )
Námskeið 7: 12. – 15. ágúst (fjórir dagar )
Hægt er að velja um námskeið kl. 09-12 eða kl. 13-16.
Nánari upplýsingar um skráningar HÉR
Verð: 5 daga námskeið kr. 16.100,
Verð : 4 daga námskeið kr. 12.880.
Ath. Þátttaka á golfleikjanámskeiðunum veitir aukafélagsaðild í GKG. Innifalið í aukaaðild er aðgangur að 5 holu æfingavellinum fyrir barnið og fjölskyldumeðlimi til að koma og leika sér á þegar námskeið eru ekki í gangi. Einnig er hægt að nýta högg-æfingasvæðið og eru seldar æfingafötur í golfverslun GKG.
Hægt að stunda æfingar frá 8 ára aldri hjá GKG sem félagsmaður. Nánari upplýsingar um æfingatöflur, verðskrá ofl. er að finna hér.
Ef tekið er þátt í tveimur námskeiðum þá er frír aðgangur að félagsæfingum það sem eftir er af sumartímabilinu. Þó er miðað við lágmark 8 ára á árinu.
Hægt að stunda æfingar frá 8 ára aldri hjá GKG sem félagsmaður. Nánari upplýsingar um æfingatöflur, verðskrá og fl. er að finna á heimasíðu GKG . Ef tekið er þátt í tveimur námskeiðum þá er frír aðgangur að félagsæfingum það sem eftir er af sumartímabilinu, þó er miðað við að lágmarks aldur sé 8 ára á árinu.
Aðstaða og búnaður Hofstaðavöllur í Garðabæ.
Í ár fara golfnámskeiðin fram hjá GKG. Börnin hafa með sér nesti og ef veður er óhagstætt þá er hægt að leita skjóls í Hofstaðaskóla.
Ekki er nauðsynlegt að eiga golfkylfur til að taka þátt í námskeiðum GKG því búnaður er til láhns meðaná námkeiðinu stendur.
Verkstjóri leiðbeinenda í sumar verður Einar Gunnar Guðmundsson. Einar Gunnar er kennari í raftæknigreinum við Tækniskólann og gegnir einnig stöðu deildarstjóra þar.
Leiðbeinendur eru úr hópi afrekskylfinga GKG á aldrinum 16 – 21 árs, flest með verulega reynslu af námskeiðshaldi. Þess verður gætt eftir fremsta megni að hópar undir umsjón leiðbeinanda verði ekki skipaðir fleiri er 8 börnum.
Umsjón með skráningum og frekari upplýsingar veitir Ástrós Arnarsdóttir íþróttastjóri GKG og Guðmundur Daníelsson.