Gæsluvellir

Fyrir börn frá 20 mánaða aldri til 6 ára

Börnin þurfa að vera vel búin því dvöl á gæsluvelli er útivera. Gæta þarf að þolmörkum barna við dvöl þeirra og forsjáraðilar og starfsfólk hafa samráð um tímalengd dvalar barnsins á gæsluvellinum.

Muna þarf að skrá barnið hjá starfsfólki, þar sem fram koma m.a. símanúmer forsjáraðila svo hægt sé að ná í viðkomandi vegna barnsins á meðan á dvöl þess stendur.

Starfsfólki er leyfilegt að takmarka fjölda barna á gæsluvöll.

Allt starfsfólk gæsluvalla hefur farið á skyndihjálparnámskeið og fara eftir ákveðnum leiðbeiningum ef slys ber að höndum og hafa samband við forsjáraðila hið fyrsta. Öll börn sem skráð eru á gæsluvellina eru slysatryggð.

Sumaropnun gæsluvalla er frá 10. júlí – 7. ágúst frá kl. 09.00 – 12.00 og 13.00 – 16.00

Gæsluvellirnir eru:

Lækjarvöllur við Lækjarsmára. Sími 618 – 8541
Við leikskólann Sólhvörf v/ Álfkonuhvarf. Sími 618 – 8543

Gjald fyrir hverja komu á gæsluvöll er 500 kr.

Umsjón með gæsluvöllum hefur Sigurlaug Bjarnadóttir deildarstjóri leikskóladeildar og veitir hún nánari upplýsingar í síma 441-0000.