Að rækta matjurtagarð
Skólagarðar hafa verið reknir á vegum Kópavogsbæjar í rúm 50 ár.
Þeir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6 til 13 ára. Þar fá þau útsæði, plöntur og fræ ásamt leiðsögn við ræktun algengustu matjurta. Leiðbeinendur og aðstoðarmenn starfa með börnunum, en auk ræktunarinnar er farið í leiki, skoðunarferðir, haldið íþróttamót, grillað og fleira skemmtilegt. Skólagarðarnir eru þó hvorki leikjanámskeið né gæsluvellir fyrir börn.
Skólagarðar Kópavogs eru starfsæktir á eftirtöldum stöðum:
Við Dalveg
Í Guðmundarlundi
Við Víðigrund í Fossvogsdal
Starfið hefst í byrjun júní og lýkur með uppskerudegi seinni hluta ágústmánaðar.
Verð fyrir hvern garð er 6.400 kr. Innritun og skráning í skólagarðana hefst 25. apríl.
Umsjón með skólagörðum hefur Svavar Pétursson verkefnastjóri.
Senda má fyrirspurnir á starfsmenn Skólagarða í tölvupósti eða hringja í síma 441 – 9080.