Á sumarvef Kópavogsbæjar er að finna fjölbreytt og skemmtileg frístunda, – leikja – og íþróttanámskeið fyrir börn, unglinga og ungmenni. Námskeið og atvinnuverkefni á vegum Frístunda – og Íþróttadeildar Menntasviðs eru m.a.
- Leikur við sjóinn – Siglinganámskeið við Naustavör
- Smíðavöllur við Smáraskóla
- Sumarsmiðjur í félagsmiðstöðvum í öllum skólahverfum
- Hrafninn frístundaklúbbur, sumarnámskeið fyrir börn og unglinga með fötlun
- Höfuð-Borgin atvinnu – og frístundaúrræði fyrir ungmenni með fötlun á aldrinum 17 til 25 ára.
- Götuleikhús unglinga atvinnuverkefni hjá Vinnuskóla Kópavogs
- Skapandi sumarstörf í Molanum miðstöð unga fólksins
Skráningar á sumarnámskeið hefjast 25. apríl.
Undir hnappnum “Önnur námskeið” er að finna fjölbreytt önnur sumarnámskeið á vegum íþróttafélaga í Kópavogi og annarra tómstunda- og félagasamtaka, auk ýmissa annarra námskeiða utan Kópavogs.
Verið velkomin í litríkt sumarstarf í Kópavogi.
Gleðilegt sumar.