Sumarnámskeið Breiðabliks 2024
Í sumar býður Breiðablik upp á íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 10 ára í Smáranum og Fagralundi ásamt því að bjóða uppá Rafíþróttanámskeið í Arena (Smáratorgi) fyrir 7 til 15 ára og sundnámskeið í Kópavogs – og Salalaug fyrir 4 til 10 ára börn. Í Smáranum og Fagralundi eru námskeiðin frá kl. 09.00 – 12.00 og kl. 13.00 – 16.00, hægt verður að kaupa gæslu kl. 08.00 -09.00 og hádegismat og gæslu kl. 12.00 – 13.00 og frá kl. 16.00 – 17.00. Rafíþróttanámskeiðin verða í boði frá kl. 09.00 – 16.00 og einnig hálfs dags fyrir hádegi 09.00 – 12.00 eða 13.00 – 16.00. Hægt verður að kaupa gæslu kl. 12.00 – 13.00 og eða 16.00 – 17.00. Sundnámskeiðin verða á breytilegum tíma eftir getustigi og aldri.
Boðið verður uppá eftirfarandi sumarnámskeið:
- Ævintýranámskeið ( Smáranum og Fagralundi )
- Frjálsíþróttanámskeið ( Smáranum )
- Knattspyrnunámskeið ( Smáranum og Fagralundi )
- Körfuboltanámskeið ( Smáranum )
- Karatenámskeið ( Smáranum )
- Skáknámskeið ( Smáranum )
- Sundnámskeið ( Kópavogs – og Salalaug)
- Rafíþróttanámskeið ( Arena Smáratorgi)
Staðsetning og tímatafla námskeiðanna
SMÁRINN ( börn f. 2014 – 2017)
10.-14. júní | 18. – 21. júní | 24. – 28. júní | 01. – 05. júlí | 08. – 12. júlí | 15. – 19. júlí | 22. -26. júlí | 12. – 16. ág. | |
Kl. 9 – 12 | Skák Frjálsar Karate Körfubolti |
Skák Frjálsar Karate Körfubolti |
Skák Frjálsar Karate Körfubolti |
Skák Frjálsar Karate Körfubolti |
Skák Frjálsar Karate Körfubolti |
Frjálsar Karate Körfubolti |
Frjálsar Karate Körfubolti |
Frjálsar Karate Körfubolti |
Kl. 13 – 16 | Fótbolti Frjálsar Körfubolti Ævintýra |
Fótbolti Frjálsar Körfubolti Ævintýra |
Fótbolti Frjálsar Körfubolti Ævintýra |
Fótbolti Frjálsar Körfubolti Ævintýra |
Fótbolti Frjálsar Körfubolti Ævintýra |
Fótbolti Frjálsar Körfubolti Ævintýra |
Fótbolti Frjálsar Körfubolti Ævintýra |
Fótbolti Frjálsar Körfubolti Ævintýra |
FAGRILUNDUR ( börn f. 2014 – 2017)
10. -14. júní | 18. – 21. júní | 24. – 28. júní | 01. – 05. júlí | 08. – 12. júlí | 15. – 19. júlí | 22. – 26. júlí | 12. – 16. ág. | |
Kl. 9 – 12 | Ævintýra | Ævintýra | Ævintýra | Ævintýra | Ævintýra | Ævintýra | Ævintýra | Ævintýra |
Kl. 13 – 16 | Fótbolti | Fótbolti | Fótbolti | Fótbolti | Fótbolti | Fótbolti | Fótbolti | Fótbolti |
ARENA SMÁRATORG ( börn f. 2009 – 2017 )
10. – 14. júní | 18. – 21. júní | 24. – 28. júní | 01. – 05. júlí | 08. – 12. júlí | 15. – 19. júlí | 22. – 26. júlí | 12. – 16. ág. | |
Kl. 9 – 15 | Rafíþróttir | Rafíþróttir | Rafíþróttir | Rafíþróttir | Rafíþróttir | Rafíþróttir | Rafíþróttir | Rafíþróttir |
Verðskrá fyrir Smárann og Fagralund.
Námskeið 1/2 dagur (3 klst) kr. 8.000
Hádegismatur + gæsla kr. 4.300 ( aðeins í boði í Smáranum )
Gæsla í 1 klst á dag ( hægt að velja kl. 08.-09.00, 12.00 – 13.00 og 16.00-17.00) kr. 2.200
Hægt er að búa til heilan dag með því að blanda saman tveimur námskeiðum og mat og gæslu.
Verðskrá fyrir Rafíþróttanámskeið Arena Smáratorgi
Heilsdagsnámskeið ( 6 klst ) kr. 19.900
Gæsla kl. 15.00 – 16.00 kr. 2.200
Verðskrá fyrir Sundnámskeið – auglýst síðar
Breytingargjald ( færsla á milli námskeiða eftir að fyrsti dagur rennur upp ) kr. 1.500
Almennar upplýsingar.
Gert er ráð fyrir að allir taki með sér hollt og gott nesti fyrir hvert 3 klst. námskeið, tvö nesti fyrir 6 klst námskeið.
EKKERT nesti má innihalda hnetur þar sem að börn með bráðaofnæmi gætu verið á meðal þátttakenda.
Foreldrar/forsjáraðilar barna með sérþarfir býðst að sækja um stuðning fyrir börn á námskeiðin og hvetjum við viðkomandi aðila að nýta sér það. Umsókn um stuðning
Félagið áskilur sér rétt til að sameina námkseið ef þátttaka er dræm og einnig áskilur félagið sér rétt til þess að loka skráningu ef fjöldi fer yfir viðmið.
Félagið áskilur sér rétt til þess að breyta dagskrá námskeiða eftir veðri og mætingu.
ATH. Ekki er tekið við börnuum fyrr er 5 mínútum fyrir upphaf hvers námskeiðs – hægt er að kaupa gæslu fyrir þá sem þurfa að mæta fyrr með sín börn.
Í Smáranum og Fagralundi er mæting í íþróttasal húsanna þar sem leiðbeinendur taka á móti þeim.
Mikilvægt er að sækja börnin á réttum tíma og láta leiðbeinanda/starfsfólk vita að barnið sé sótt.
Lýsing á námskeiðum:
Fótbolta-, Frjálsíþrótta-, Karate-, Körfubolta-, Sund- og Skáknámskeiðum, undirstöðuatriði greinanna kynnt fyrir iðkendum í bland við skemmtilega leiki sem henni tengjast.
Ævintýranámskeiðunum, farið í ýmislega leiki, íþróttir, göngutúra og jafnvel fjöruferðir svo eitthvað sé nefnt.
Sundnámskeið, Sunddeild Breiðabliks býður í sumar upp á sundnámskeið í Sundskóla Breiðabliks í júní og júlí. Líkt og áður sjá reyndir og traustir kennarar um kennsluna, ásamt aðstoðarfólki í laug. Aðstoðarfólkið fylgir börnunum í gegnum búnings- og baðklefa.
Allar fyrirspurninr skulu sendar á netfang sumarnámkseiða Breiðabliks.
Breiðablik – Dalsmári 5
Sími: 591-1100