Bogfimi – sumarnámskeið

Sumarnámskeið í bogfimi fyrir 10 12 ára og 13 til 17 ára.

Bogfimifélagið Boginn býður upp á sumarnámskeið fyrir börn og unglinga í sumar.
Námskeiðin verða haldin í Bogfimisetrinu í Dugguvogi 2, 104 Reykjavík.

Bogfimi er vaxandi íþrótt á Íslandi og er þetta námskeið tilvalið fyrir börn sem vilja komast inn í íþróttina eða prufa hvernig er að skjóta boga og hitta í 10. Kennd verður helsta tækni við að skjóta af boga, taka þátt í keppnum og hafa gaman.

Námskeiðinu er skipt í tvo aldurshópa sem eru á sama tíma en þeir eru sér, og skipt upp svo krakkarnir geta verið að skjóta með sínum aldurshóp,
10-12 ára (2012-2014) og 13-17 ára (2007-2011).

Hægt er að skrá fyrir og eftir hádegi:
Fyrir hádegi: 09:30 til 12:00
Eftir hádegi: 13:00 til 15:30

Námskeiðsvikur

Júní.
Námskeið 1: 10. – 14. júní
Námskeið 2: 18. – 21. júní
Námskeið 3: 24. – 28. júní

Ágúst.
Námskeið 4: 06. – 09. ágúst
Námskeið 5: 12. – 16. ágúst

Hámarks fjöldi barna á námskeiðinu fyrir 10-12 ára er 20 börn.
Hámarks fjöldi barna á námskeiðinu fyrir 13-17 ára er 12 unglingar.

Námskeiðsgjald: kr. 17.500.

Nánari upplýsingar og skráning

Skráning er hafin á Sportabler – Boginn.

Netfang: boginn@archery.is