Í sumar mun HK bjóða upp á fjölbreytt og vönduð námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6 til 11 ára ( 2013 – 2018 ). HK reynir eftir fremsta megni að ná til sem flestra barna og þetta sumarið er engin undantekning. Skipulögð dagskrá frá kl. 09.00 – 12.00 og 13.00 – 16.00 alla virka daga. Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og er skráning sérstaklega í það.
Allir umsjónarmenn sumarnámskeiða HK hafa reynslu af skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi barna.
Í sumar verða 5 mismunandi námskeið í boði:
Blakskóli HK – 5 námskeið ( börn f. 2013 – 2017 )
Borðtennisskóli HK – 4 námskeið ( börn f. 2014 – 2017 )
Handboltaskóli HK – 5 námskeið ( börn f. 2014 – 2017 )
Fjölgreinanámskeið HK – 2 námskeið ( börn 2015- 2018 )
Knattspyrnuskóli HK – 6 námskeið ( börn f. 2014 – 2017 )
Gagnlegar upplýsingar:
- Sama verð er á öll hálfsdags námskeið
- 10% systkinaafsláttur af öllum námskeiðum innan sömu deildar
- Ekki er heimilt að breyta skráningu námskeiða eftir að námskeið er hafið
- Hvert stakt námskeið reiknast 3 klst.
- Fyrir heilsdagsnámskeið eru sett tvö stök námskeið í körfu
- Gert er ráð fyrir að börnin taki með sér hollt nesti og vatnsbrúsa en það er einn nestistími á hverju 3 klst. námskeiði
- Börn sem eru á námskeiðum fyrir og eftir hádegi skulu mæta með hollt og gott nesti. Í Kórnum er aðstaða fyrir iðkendur að borða og bíða eftir næsta námskeiði. Starfsmenn eru á svæðinu.
- SAMLOKUKORT og annað snarl er til sölu í afgreiðslu í Kórnum.
- Boðið er upp á heitan mat í hádeginu gegn vægu gjaldi, skráning í gegnum Abler.
- Fjölgreinanámskeið í ágúst er fyrir öll börn fædd 2015-2018. Börnin fá tækifæri til að kynnast fjórum íþróttagreinum; blaki, borðtennis, handbolta og knattspyrnu, ásamt útiveru og náttúrunni í nærumhverfi HK. Heit máltíð í hádeginu er innifalin í verði. Hver dagur er vel skipulagður. Börnin mæta í Kórinn og enda daginn þar líka.
- Við opnum kl. 08:45 á morgnana og forráðamenn eru beðnir að sækja börnin sín tímanlega en öllum námskeiðum lýkur kl. 16:00.
Fleiri gagnlegar upplýsingar:
- HK áskilur sér rétt til að sameina námskeið ef ekki næst lágmarksþátttaka.
- HK áskilur sér rétt til að loka fyrir skráningu á námskeið ef hámarksfjölda er náð.
- HK áskilur sér rétt til að breyta dagskrá (t.d. vegna veðurs eða mætingar á námskeið).
- Það er mikilvægt að nærast vel og viljum við því biðla til foreldra að senda börn með hollt og gott nesti og vatnsbrúsa (eitt nesti á hverju 3 klst. námskeiði)
- ATHUGIÐ! Hnetur og aðrir bráða ofnæmisvaldar bannaðir.
- Iðkendur eru beðnir um að mæta klæddir eftir aðstæðum. Eftir veðri ef útivera er á dagskrá og eða í viðeigandi klæðnaði, íþróttafötum og helst íþróttaskóm.
- Frekari upplýsingar um námskeið og fyrirkomulag námskeiða veitir
íþrótta- og markaðsstjóri HK Arnór Ásgeirsson.
Verðskrá:
Námskeið 1/2 dagur 3 klst. (5 dagar) kr. 8.500
Námskeið 1/2 dagur 3 klst. (4 dagar) kr. 6.800
Fjölgreinanámskeið 1/1 dagur 7 klst. (5 dagar) kr. 21.000 (heitur matur innifalinn)
Fjölgreinanámskeið 1/1 dagur 7 klst. (4 dagar) kr. 16.600 (heitur matur innifalinn)
Heitur matur í hádeginu (5 dagar) kr. 4.000
Heitur matur í hádeginu (4 dagar) kr. 3.000
Frekari upplýsingar um námskeið og fyrirkomulag námskeiða veitir íþrótta- og markaðsstjóri HK.