Hrafninn frístundaklúbbur

Hrafninn er  frístundaklúbbur fyrir börn og unglina með fötlun og er til húsa við Skálaheiði 2 (við íþróttahús Digranes)

Starfið í Hrafninum er tvíþætt, sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 7 til 16 ára. Hrafninn er fyrir börn og unglinga með lögheimili í Kópavogi.

Markmið í starfi Hrafnsins er að veita þeim börnum og unglingum fastan punkt í tilveruna og bjóða upp á fjölbreyttar og skipulagðar tómstundir sem hæfi öllum þátttakendum. Viðfangsefni sumarnámskeiðanna eru m.a. sundferðir, skólagarðar, útivist og ýmsar stuttar ferðir innan og utan bæjarmarkanna.

Stuðlað er að því að öllum líði vel og finnist gott að koma í Hrafninn til að njóta frístunda verkefna í öruggu og skemmtilegu umhverfi.

Börnin þurfa að hafa með sér nesti fyrir allan daginn.

Skipulögð dagskrá er frá kl. 09.00 – 16.00.

Námskeiðsvikur í júní og júlí

Námskeið 1: 10. júní – 14. júní
Námskeið 2: 18. júní – 21. júní
Námskeið 3: 24. júní – 28. júní
Námskeið 4: 01. júlí – 05. júlí
Námskeið 5: 08. júlí – 12. júlí
Námskeið 6: 15. júlí – 19. júlí

Hrafninn er lokaður frá 22. júlí – 05. ágúst.

 

Námskeiðsvikur í ágúst
Námskeið 7:
06. – 09. ágúst
Námskeið 8: 12. – 16. ágúst

Námskeiðsgjald er kr. 12.100 hver vika. Gjald vegna gæslu kl. 08.00 – 09.00 og kl. 16.00 – 17.00 er 580 kr. fyrir hverja klst. Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 25 börn.

Skráning hefst 25. apríl og námskeiðsgjald greiðist við skráningu.
Systkinaafsláttur reiknast við skráningu.

 

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Ágerður Stefanía Baldursdóttir og Guðmunda Brynja Óladóttir
Hrafninn s. 441 9381. Gsm. 897 0013.