Sumarbúðir Söguheima fyrir börn á aldrinum 8 til 13 ára.
Sumarbúðir söguheima eru fimm til sjö daga ferðalag um sagnaheim ævintýrisins sem í boði er hverju sinni. Ævintýrið á sér stað í ævintýra dalnum í fallegu umhverfi Lækjarbotna. Þar reisum við tjöldin okkar og kveikjum upp varðeld undir gullnu þaki heimsins. Við ætlum að kynnast heiminum, náttúrunni og hvert öðru í gegnum útiveru og leik. Við munum horfa á eftir miðnætursólinni, sofa í tjöldunum og sitja við eldinn og búa saman í eina viku. Á daginn munum við æfa sirkus og dans, læra að tálga og skjóta boga, elda ljúfengan mat og mála úti með vatnslitum, teikna og segja sögur.
Í sumarbúðunum er farið inní eina sögu hverja viku. Þar söfnumst við saman í kringum sögupersónur og sögusvið sögunnar sem á sér stað. Á daginn munum við leika okkur í söguheimi sögunnar fá að upplifa hana, heyra og taka þátt í henni. Við fylgjum eftir sögupersónunum og þeim raunum og þrautum sem þær þurfa að leysa og tileinkum okkur þau sannindi og gildi sem er að finna í hverri sögu. Við snarkandi varðeld undir himinhvolfinu. Upplifðu söguna á eigin skinni.
Skráning og nánari upplýsingar um námskeið og verð eru á heimasíðu Söguheima
Nánari upplýsingar veita Ívar í síma 892 – 1142 og Lui í síma 858 – 7443.
Einnig er hægt að senda póst á netfangið sirkusnamskeid@gmail.com og soguheimar@gmail.com