Félagsmiðstöðvar.
Félagsmiðstöðvar Kópavogs, Félkó, halda úti fjölbreyttum og skemmtilegum opnunum á sumrin fyrir 11-13 ára annars vegar og 14-16 ára hins vegar. Með yngri hópinn er horft til þess að hafa fjölbreyttar smiðjur sem tengjast afþreyingu, föndri, útivist, hreyfingu og ýmislegt fleira. Fyrir eldri hópinn eru hefðbundnar dag- og kvöldopnanir ásamt hádegisopnunum fyrir vinnuskólann, sértækt hópastarf ásamt útilegu og öðrum sumarlegum viðburðum.
Smiðjur fyrir 11 – 13 ára ( f. 2011 – 2013 )
Í sumar verða í boði sumarsmiðjur í öllum félagsmiðstöðvum.
Hámarksfjöldi í hverja sumarsmiðju eru 20 börn.
Gjaldskrá í smiðjurnar er breytileg og tekur mið af viðfangsefni hverrar smiðju.
Vakinn er athygli á að afbókun í smiðjur þarf að berast með viku fyrirvara, að öðrum kosti fæst smiðjugjald ekki endurgreitt.
Skráning hefst 25. apríl.
Námskeiðsgjald greiðist við skráningu.
Sumaropnun í félagsmiðstöðvum.
Á sumrin er mikið lagt upp úr öflugu hópastarfi, útivist, og góðu samstarfi við Vinnuskóla Kópavogs ásamt því að halda úti metnaðarfullri dag- og kvöld dagskrá.
Hver og ein félagsmiðstöð verður með sína dagskrá og hópa í sumar og forstöðumenn senda til upplýsinga á forsjáraðila í tölvupósti í sumarbyrjun.
Umsjón og ábyrgð með sumarstarfi Félkó er í höndum forstöðumanns í hverri félagsmiðstöð.
Félagsmiðstöðvar eru eftirfarandi:
Dimma Vatnsendaskóla
Ekkó Kársnesskóla
Fönix Salaskóla
Igló Snælandsskóla
Jemen Lindaskóla
Kjarninn Kópavogsskóla
Kúlan Kóraskóla
Pegasus Álfhólsskóla
Þeba Smáraskóla
Forstöðumenn félagsmiðstöðva í hverju skólahverfi hafa umsjón með sumarsmiðjum og sumaropnun í félagsmiðstöðvum og veita nánari upplýsingar.