Sumarvefur kópavogsbæjar

Á sumarvef Kópavogsbæjar er að finna fjölbreytt og skemmtileg frístunda, – leikja – og íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára. Námskeið á vegum frístunda – og íþróttadeildar verða m.a. hjóla- og ævintýranámskeið, skapandi kvikmyndagerð og siglinganámskeið. Sumarstarf í frístundaklúbbnum Hrafninum er fyrir börn og unglinga með sérþarfir og atvinnutengt frístundaúrræði verður fyrir ungmenni með sérþarfir á aldrinum 17 til 24 ára í starfs- og frístundaklúbbnum Tröð.

Götuleikhús Kópavogs og Skapandi sumarstörf er vinnutengt unglinga – og ungmennastarf og munu þau glæða bæinn leik- og tónlistarlífi með ýmsum hætti.

Opnað verður fyrir skráningar í fyrrgreind námskeið hér á vefnum á Sumardaginn fyrsta 19. apríl. Verið velkomin í litríkt sumarstarf í Kópavogi.

Helstu nýjungar í kynningarefni á sumarvefnum eru útivistarnámskeið skátafélagsins Kópa, námskeið í kvikmyndagerð, sumaræfingar í siglingum hjá siglingafélaginu Ými og listtengd námskeið á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi. KVAN bjóða upp á sumanámskeið sem m.a. er að kenna félags – og leiðtogafærni. Reiðskólinn Hestalíf er nýung í sumar og bíður upp á námskeið í júlí og júlí. Auk þess er meira framboð af sumarnámskeiðum í ágúst á vegum íþróttafélaga í Kópavogi. Kvikmyndanámskeið verður einnig í boði í Bókasafni Kópavogs.

Undir hnappnum “Önnur námskeið” er að finna ýmis sumarnámskeið á vegum íþróttafélaga í Kópavogi og annarra tómstunda- og félagasamtaka. Nánari upplýsingar um þau eru á heimasíðum þeirra ásamt upplýsingum um skráningarferli.

Gleðilegt sumar

Posted in Fréttir.