Á námskeiðinu er lögð áhersla á tennisæfingar, tennisspil og ýmsa tennisleiki auk þess sem spilaðir eru hlaupa- og boltaleikir. Þátttakendur fá einnig að kynnast nýrri íþrótt á Íslandi sem heitir Padel. Aðal áhersla, í öllum aldurhópum, er að hafa gaman af tennis og padel. Hvert námskeið er sett upp sem tveggja vikna námskeið en hægt er að taka stakar vikur.
Námskeiðsvikur eru eftirfarandi:
Námskeið 1: | 11. júní – 25. Júní |
Námskeið 2: | 28. júní – 9. Júlí |
Námskeið 3: | 12. júlí – 23. Júlí |
Námskeið 4: | 26. júlí – 6. ágúst |
Námskeið 5: | 9. ágúst – 20. ágúst |
Í lok hvers námskeiðs er haldin pizzu – eða grillveisla og fá allir nemendur TFK bol og viðurkenningarskjal. Hægt er að velja um námskeið frá kl. 9:00 – 12:00, frá kl. 13:00 – 16:00 og allan daginn frá kl. 09:00 – 16:00. Börnin geta fengið gæslu kl. 7:45 – 09:00, í hádeginu og frá kl. 16:00 – 17:15. Gæsla er án endurgjalds.
Námskeiðsgjald: Verð fyrir hverja viku hálfan daginn er kr. 13.900 kr. og fyrir heilan dag 19.900 kr. Systkinaafsláttur er 10% fyrir öll systkini. Veittur er hlutfallslegur afsláttur ef vika á námskeiði er styttri en 5 dagar.
Umsjón með Tennisskólanum hafa tennisþjálfararnir Jón Axel Jónsson, Milan Kosicky og Diana Ivancheva.
Skráning er hafin á heimasíðu TFK. Skráning hér. Einnig er hægt að hafa samband við Tennishöllinna í síma 564 – 4030 og í tölvupósti á tennis@tennishollin.is.
Vinsamlegast frestið ekki skráningu því aðeins 60 börn komast á hvert námskeið.